Greiðsluveitan – Nýtt aðildarfélag SSF
Starfsmannafélag Greiðsluveitunnar er nýtt aðildarfélag að SSF en lögum samkvæmt bíður formleg afgreiðsla aðildar staðfestingar á næsta þingi SSF sem haldið verður árið 2016. Starfsmannafélag Greiðsluveitunnar verður, með formlegri inntöku, þrettánda aðildarfélag SSF og bætist í ört stækkandi hóp félagsmanna SSF.
Greiðsluveitan er sjálfstætt starfandi einkahlutafélag í eigu Seðlabanka Íslands. Tilgangur félagsins er að starfrækja greiðslukerfi og önnur þjónustukerfi tengd greiðslumiðlun í samræmi við gildandi lög og reglur, þ.á.m. að viðhalda og tryggja öryggi og virkni þeirra, sem og skylda starfsemi. Hjá fyrirtækinu starfa fimmtán starfsmenn í fullu starfi sem sinna hinum ýmsu verkefnum tengdum starfsemi félagsins.
Fyrirtækið var verðlaunað í ár fyrir góða stjórnarhætti af Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. Með viðurkenningunni fékk Greiðsluveitan nafnbótina „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ og fer í hóp ellefu íslenskra hlutafélaga sem fengu þessa viðurkenningu á ráðstefnu Rannsóknarmiðstöðvarinnar. Þá var Greiðsluveitan valið ,,Framúrskarandi fyrirtæki“ vegna áranna 2012 og 2013. Af rúmlega 33 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna einungis 462 fyrirtæki þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“.
Nánar má fræðast um starfsemi okkar nýjustu félagsmanna á heimasíðu fyrirtækisins, greidsluveitan.is.