Undirbúningur hafinn vegna kjarasamningsviðræðna
Undirbúningur fyrir kjaraviðræður vegna kjarasamningsviðræðna 2015 er kominn á fullt skrið innan vébanda Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Undanfarið hafa farið fram trúnaðarmannafundir hjá aðildarfélögum þar sem kallað hefur verið eftir umræðum um komandi kjarasamningsviðræður og kröfugerð SSF.
Þann 13. -14. nóvember nk. fer fram formannafundur SSF á Selfossi, þar sem um 80 félagar úr stjórnum og trúnaðarmannahópi aðildarfélaga SSF koma saman. Á þeim fundi verður lögð áhersla á stöðu kjarasamningsmála ásamt kröfugerð og launaþróun félagsmanna.
Stjórn SSF vill hvetja félagsmenn til að taka beinan þátt í kröfugerð SSF með því að koma á framfæri skoðunum sínum með því að hafa samband við sinn trúnaðarmann, stjórn síns aðildarfélags eða beint til SSF með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].
Mikilvægt er að sem flestar raddir heyrist til að kröfurnar endurspegli sem best álit félagsmanna.