Framboð til stjórnar SSF 2016-2019
Framboðsfrestur til stjórnar SSF fyrir starfstímabilið 2016 – 2019 rann út þann 9. febrúar sl. Fjórir gefa kost á sér til 2. varaformanns. Kosið verður á þingi SSF sem fer fram dagana 10. – 11. mars nk.
Kjörgengir til stjórnar eru allir fullgildir félagsmenn SSF (allir sem ráðnir eru til lengri tíma en fjögurra mánaða). Stjórn SSF skipa 11 félagsmenn og skal kjósa formann, 1. og 2. varaformann hvern fyrir sig, en síðan 8 meðstjórnendur. Einungis er heimilt að bjóða sig fram til tveggja embætta.
Eftirfarandi félagsmenn hafa gefið kost á sér til stjórnarsetu:
Framboð til formanns
Friðbert Traustason, SSF
Framboð til 1. varaformanns
Anna Karen Hauksdóttir, SÍ
Framboð til 2. varaformanns
Anna Lea Gestsdóttir, Starfsm.félag Byggðastofnunar (býður sig jafnframt fram til meðstjórnanda)
Ari Skúlason, FSLÍ (býður sig jafnframt fram til meðstjórnanda)
Daníel Reynisson, Trúnaðarmannaráð Arion banka (býður sig jafnframt fram til meðstjórnanda) (Hefur dregið fram sitt til 2. varaformanns til baka)
Hörður Jens Guðmundsson, Trúnaðarmannaráð Arion banka (býður sig jafnframt fram til meðstjórnanda)
Framboð til meðstjórnanda (8 sæti)
Anna María Hjartardóttir, FSLÍ
Birgit Jóhannsdóttir, VÍST (Hefur dregið framboð sitt til baka)
Daníel Reynisson, Trúnaðarmannaráð Arion banka
Guðný S. Magnúsdóttir, FSLÍ
Guðrún Jóna Jónsdóttir, Starfsm.félag RB
Gunnar Gunnarsson, Starfsm.félag Seðlabankans
Jóhann Arnarson, Starfsm.félag Byggðastofnunar
Nanna Kristín Tryggvadóttir, FSLÍ
Oddur Sigurðsson, SÍ
Tvö af eftirfarandi verða einnig í kjöri til meðstjórnanda en kjör 2. varaformanns fer fram á undan kjöri meðstjórnenda:
Anna Lea Gestsdóttir, Starfsm.félag Byggðastofnunar
Ari Skúlason, FSLÍ
Hörður Jens Guðmundsson, Trúnaðarmannaráð Arion banka
Kjörnefnd SSF