46. Sambandsþing SSF sett
Þingsetning 46. sambandsþings Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja var í gær, fimmtudaginn 10. mars, á Selfossi. Anna Karen Hauksdóttir, 1. varaformaður SSF, setti þingið og bauð þingfulltrúa aðilarfélaga SSF velkomna. Anna Karen setti þingið í fjarveru Friðberts Traustasonar, formanns SSF, sem gat ekki setið þingið sökum veikinda.
Þinginu lýkur svo í dag, föstudaginn 11. mars, að lokinni kosningu stjórnar og afgreiðslu ályktanna.