Norðmenn semja
Mögulegu verkfalli hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja í Noregi hefur verið afstýrt með undirritun nýs kjarasamnings. Kjarasamningurinn verður borinn undir félagsmenn á næstu dögum áður en til atkvæðagreiðslu kemur í lok mánaðarins.
Í megindráttum féllu atvinnurekendur frá kröfu sinni um “hefðbundinn” vinnudag til klukkan 21:00 á daginn og því að aldursviðmið fyrir styttri vinnudag (um 1 tíma) yrði hækkað úr 64 ára í 67 ára.
Helstu atriði:
· Laun hækka um 1% (1.5.2018) í miðlægum samningi (70% af heildarhækkun tímabils), að lágmarki um 4000 krónur á ári.
· Búinn verður til launapottur í hverju fyrirtæki sem getur hækkað launin á kjarasamnings tímabilinu ( ca. 0,3%).
· Lágmarkslaun hækka úr 286.547 krónum á ári í 333.218 (360.000 íslenskar á mánuði).
· 4 nýir launaflokkar bætast við ofan á töflu.
· Sá sem tekur a.m.k. 5 mánaða fæðingarorlof fær eins flokks launahækkun þegar hún/hann kemur aftur til vinnu (aðgerð varðandi jafnlaun).