Launakönnun SSF – Hverjar eru þínar áherslur í komandi kjaraviðræðum?
Nú eiga allir félagsmenn að hafa fengið afhent umslag með vefslóð á launakönnunina og lykilorði. Við hvetjum félagsmenn til að svara könnuninni sem tekur aðeins um 5 mínútur. Auk hefðbundinna spurninga er að auki spurt um hvað félagsmenn vilji leggja áherslu á í komandi kjaraviðræðum.
Við ítrekum að launakönnun SSF er eina tækið fyrir félagsmenn til að staðsetja sig í launum miðað við starfsvettvang, menntun og reynslu.
Ef einhver vandamál koma upp þá eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við SSF ([email protected] eða sími 5406100).