47. þingi SSF slitið
47. þing SSF fór fram á Selfossi dagana 21. og 22. mars. Þingið var viðburðarríkt og settu yfirstandandi kjaraviðræður mark sitt á umræður og afgreiðslur nefnda. Friðbert Traustason, formaður SSF, setti þingið og ávarpaði þingfulltrúa. Í formannsræðu fór Friðbert yfir fækkun starfsmanna fjármálafyrirtækja, síðustu kjaraviðræður og yfirstandandi kjaraviðræður, fjórðu iðnbyltinguna, launajafnrétti og launaleynd.
Á þinginu var ákveðið að hefja átak á vegum menntunarsjóðs og stórauka framlög úr sjóðnum á komandi árum. Þá var samþykkt lagabreyting um kynjakvóta í stjórn SSF og að formaður og varaformaður SSF geti ekki verið af sama kyni. Mun stjórnarkjör á þingi SSF 2022 taka mið af þessum lagabreytingum.
Að lokum fór fram stjórnarkjör en ljóst var að það yrðu breytingar á stjórn félagsins þar sem Anna Karen Hauksdóttir sem hafði gegnt embætti 1. varaformanns SSF gaf ekki kost á sér. Var henni þakkað ómetanlegt framlag í þágu félagsmanna SSF með standandi lófaklappi. Þá hafði Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi, einnig tilkynnt að hann gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Var honum þakkað fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna á undanförnum árum.
Nýkjörna stjórn SSF skipa:
Friðbert Traustason, sem var sjálfkjörinn í embætti formanns SSF.
Ari Skúlason, sem var sjálfkjörinn í embætti varaformanns SSF.
Bára Björk Ingibergsdóttir.
Daníel Reynisson.
Guðný S. Magnúsdóttir.
Helga Jónsdóttir.
Hörður Jens Guðmundsson.
Jóhann Arnarson.
Oddur Sigurðsson.
Nánar verður fjallað um afgreiðslu þingsins á næstu dögum.