Júníblað SSF
Nýjasta tölublað SSF blaðsins er komið út. Í blaðinu fer Friðbert Traustason, formaður SSF, yfir gerð nýs kjarasamnings. Auk þess er fjallað um nýgerðan kjarasamning í blaðinu og áhrif hans á kjör félagsmanna. Þá er einnig fjallað um samþykktir og ályktanir 47. þings SSF, nýkjörna stjórn samtakanna og fleira.
Hægt er að fletta vefútgáfu blaðsins hér.