Breyttar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs SSF
Samþykkar voru breytingar á úthlutunarreglum styrktarsjóðs SSF þann 9. september sl. og tóku nýjar reglur gildi þann sama dag. Breytingarnar eru eftirfarandi:
- Hámarksgreiðslur dagpeninga verða kr. 800.000 (var 650.000) en nema að öðrum kosti 80% af launum.
- Hámarksgreiðslur vegna sálfræðimeðferðar eru kr. 11.000 (var 10.000) fyrir hvern tíma. Greitt er fyrir 10 skipti á 12 mánaða tímabili.
- Endurgreitt er að hámarki kr. 25.000 (var 20.000) fyrir göngugreiningu og hjálpartæki á 12 mánaða tímabili.
- Sjóðurinn styrkir foreldranámskeið og er hægt að fá hámarksgreiðslu endurgreidda að upphæð 25.000 (var 15.000) á hverjum 12 mánuðum.
- Nú er hægt að sækja um styrk vegna allra sjónglerja en áður var eingöngu um að ræða dýr sjóngler sem kostuðu yfir 35.000. Styrkurinn er 50% af verði sjónglerja en ekki umgjörða, þó er aldrei greidd hærri upphæð en kr. 80.000.
- Sjóðurinn greiðir styrk vegna augnlinsa, styrkurinn er 50% af verði augnlinsa, þó er aldrei greidd hærri upphæð en kr. 25.000 (var 20.000) á hverjum 12 mánuðum.
- Endurgreiddur er kostnaður vegna laseraðgerða á augum og augnsteinsaðgerða að hámarki kr. 150.000 (var 100.000) á hverjum 12 mánuðum.
- Endurgreitt er að hámarki kr. 250.000 (var 150.000) á hverjum 12 mánuðum fyrir heyrnatæki.
- Sjóðurinn greiðir dánarbætur (útfararstyrk) við andlát félagsmanns SSF, sem er í starfi við andlát. Upphæð útfararstyrks er kr. 500.000 (var 350.000).
Um StyrktarsjóðsSSF
Meginverkefni Styrktarsjóðs SSF er að greiða dagpeninga til félagsmanna sem missa laun vegna sjúkdóma eða slysa. Einnig að styrkja félagsmenn sína við ýmsar fyrirbyggjandi skoðanir og meðferðir, s.s. krabbameins- og hjartaskoðun og sjúkraþjálfun. Hér á eftir er upptalning á öllum styrkjum, sem hægt er að sækja um.
Sjóðurinn er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda sem greiða upphæð sem nemur 0,7% af mánaðarlaunum starfsmanna. Þar sem fjármagn sjóðsins er takmarkað verður einnig að takmarka til hvaða málaflokka er greitt hverju sinni. Úthlutunarreglur eru í stöðugri endurskoðun, með tilliti til þess að hægt sé að sinna meginverkefnum sjóðsins.
Stjórn sjóðsins vill vekja athygli á því að í hvert sinn sem sótt er um styrk, þarf að skila rafrænu umsóknarblaði í gegnum Mínar síður SSF og skönnuðu afriti af frumritum reikninga, ásamt beiðni eða vottorðum sé þess krafist í úthlutunarreglunum.
Kostnaður við umbeðin læknisvottorð er endurgreiddur gegn framvísun frumrits reikninga.
Réttur í sjóðinn miðast við það tímabil sem viðkomandi greiðir félagsgjald til SSF og þarf sú þjónusta sem sótt er um endurgreiðslu vegna að hafa verið veitt á því tímabili. Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktarsjóði í 6 mánuði eftir síðustu launagreiðslu frá fjármálafyrirtæki.
Athugið að greiðslur úr styrktarsjóði eru skattskyldar, en aðeins er tekin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum (ekki almennum styrkjum) svo skattur af þeim greiðist í álagningu næsta árs. Styrkir eru aldrei greiddir vegna reikninga sem eru eldri en 12 mánaða. Sama á við um þjónustu sem veitt hefur verið félagsmanni fyrir meira en 12 mánuðum.
Ítarlegri upplýsingar um styrktarstjóð SSF og úthlutunarreglur má finna hér.