Orlofsuppbót 2020
Orlofsuppbót félagsmanna SSF, kr. 51.000 miðað við fullt starf, verður greidd út með launum þann 1. júní 2020.
Upphæðin fer eftir starfshlutfalli og starfstíma á nýliðnu orlofsári (1.5.2019-30.04.2020).
Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Nánari upplýsingar um orlofsuppbót má finna í grein 1.6.2 í kjarasamningi SSF og SA. Hér má nálgast kjarasamninginn.