LAUNAKÖNNUNIN KLÁR? BÚIN/N AÐ SVARA?
Nú er ein vika eftir af svartíma launakönnunar sem er til 20 október. Okkur vantar enn nokkur hundruð svör til að ná 80% svörun sem væri algerlega frábært.
Eruð þið ekki til í að hjálpa okkur öllum að ná því markmiði? Upp á borð með könnunina, náið ykkur í kaffi og svarið….þetta tekur ekki langan tíma!
Gleymið ekki að bréfið með lykilorðinu gæti fært ykkur 100.000 króna happdrættisvinning, það má nú kaupa sér eitthvað fallegt fyrir það. 😊