LOKAÐ Á SKRIFSTOFU VEGNA TRÚNAÐARMANNANÁMSKEIÐS
Næstu tvo daga 19.-20.október verður skrifstofa SSF lokuð vegna trúnaðarmannanámskeiðs hjá okkur. Við munum heldur ekki geta svarað síma þar sem við erum upptekin á námskeiðinu. Eftir sem áður er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og við munum svara svo fljótt sem auðið er. Vonum að við njótum skilnings vegna þessa, en menntun trúnaðarmanna er okkur hjá SSF afar mikilvæg og kemur ykkur félagsmönnum öllum til góða.