Vinnutímastytting verr nýtt en áður
Samkvæmt niðurstöðum launakönnunar nýttu færri sér vinnutímastyttinguna í október 2023 en í september 2021. Nú nýttu 76,5% sér styttinguna samanborið við 79% 2021.
Nýtingin eykst með aldri og það dregur úr nýtingunni með aukinni menntun. Þeir sem nýta sér styttinguna vinna hins vegar minna en hinir. Þeir sem nýta vinnutímastyttingu vinna að meðaltali 40,9 stundir á viku en hinir 42,9 stundir.
ÓSÓTTIR VINNINGAR
Enn eru örfáir ósóttir vinningar úr launakönnunarhappdrættinu. Endilega skoðið bréfið ykkar og athugið hvort þið hafið unnið! Vinningaskrána sjáið þið hér: