Launahækkun og gildistími kjarasamnings styttur
Samkvæmt kjarasamningi SSF hækka laun um 3,25% þann 1. febrúar 2013. Sjá uppfærða launatöflu undir Kjaramál.
Í fjórðu grein í kjarasamningum SSF og SA, frá 16. maí 2011 segir: ,,Verði gerðar breytingar á samningsákvæðum eða samningstíma á grundvelli forsenduákvæðis í kjarasamningi SA og aðildarsamtaka ASÍ, dags. 5. maí 2011, skal það sama gilda um samning þennan.” Núgildandi kjarasamningur SSF gildir því til 30. nóvember 2013.