Launakönnun 2013
Stjórn SSF hefur ákveðið að gera launakönnun á meðal félagsmanna. Könnunin er liður í undirbúningi næstu kjarasamninga SSF, en samningar eru lausir 1. desember 2013. Framkvæmd könnunarinnar verður í höndum Capacent Gallup. Um er að ræða könnun sem unnin er rafrænt en trúnaðarmenn SSF munu útdeila umslögum með lykilnúmerum.
Mikilvægt er að félagsmenn leggi sitt af mörkum til að svörun verði sem allra best. Með því verða niðurstöður marktækari og nýtast félagsmönnum betur sem viðmið um eigin laun. Þegar niðurstöður liggja fyrir verða þær birtar á aðgengilegu formi hér á heimasíðunni.
Stjórn SSF