Þing SSF, 14. – 15. mars 2013
45. þing SSF verður haldið dagana 14. – 15. mars 2013 á Hótel Selfossi. 65 fulltrúar frá aðildarfélögum SSF sitja þingið, ásamt gestum. Það eru aðildarfélögin sem skipa/kjósa fulltrúa til setu á þinginu. Á þinginu er mótuð stefna SSF til næstu þriggja ára, ásamt því að gera upp starf stéttarfélagsins síðustu þrjú árin.
Á þinginu er stjórn SSF kosin, formaður og 5 meðstjórnendur. Að þessu sinni er kosningu á annan veg háttað en áður. M.a. verða áhugasamir að skila inn framboðum til kjörnefndar SSF (hilmar(hjá)ssf.is) með a.m.k. eins mánaðar fyrirvara, eða fyrir 14. febrúar 2013.
Stjórn SSF