skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

BÚIÐ AÐ OPNA SKRIFSTOFU SSF

BÚIÐ AÐ OPNA SKRIFSTOFU SSF

Kæru félagsmenn,

Nú er búið að opna skrifstofuna eftir sumarlokun samkvæmt auglýstum opnunartíma.  Lífið er farið að ganga sinn vanagang, styttist í að skólar hefjist hjá ungviðinu og félagsmenn að tínast inn til vinnu.

Við erum að hamast við að fara yfir umsóknir í Menntunar- og Styrktarsjóði en það tekur alltaf einhverja daga að vinna upp og greiða út, svo við vonum að þið sýnið þolinmæði eins og alltaf

Ekki er úr vegi að þið skoðið í millitíðinni umsókn ykkar á „mínum síðum“ og kannið hvort fylgigögn séu ekki lagi, svo sem að með fylgi kvittun (ekki reikningur) og þær staðfestingar sem eiga að fylgja skv. reglum sjóðanna.

Einnig er gott að skoða hvort upplýsingar um bankareikning, símanúmer og netfang sé ekki rétt skráð á „mínum síðum“.

Starfsfólk SSF

Search