COVID-19 Lokað fyrir heimsóknir á skrifstofu SSF
Ákveðið hefur verið að loka fyrir heimsóknir á skrifstofu SSF um óákveðinn tíma vegna COVID-19. Áfram verður öllum erindum sinnt og þjónustan að öðru leyti með hefðbundnum hætti. Félagsmönnum SSF er bent á að senda inn erindi með rafrænum hætti eða símleiðis.
Sími skrifstofu SSF er 5406100. Hægt er að senda fyrirspurnir eða erindi á netfangið [email protected]
Einnig bendum við á Mínar síður SSF en þar geta félagsmenn sótt um styrki í Styrktar- og Menntunarsjóð SSF, bætt fylgiskjölum við umsóknir, séð stöðu umsókna og uppfært persónuupplýsingar.
Á heimasíðu SSF, www.ssf.is, er hægt að nálgast allar helstu upplýsingar.
Skrifstofa SSF biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.