DING, DING, DING – SSF ÞING 17.-18. MARS 2022
Næstkomandi fimmtudag og föstudag 17.-18. mars 2022 verður þing SSF haldið. Þingið er haldið á þriggja ára fresti þar sem 65 fulltrúar frá öllum aðildarfélögum SSF koma saman og leggja línurnar fyrir næstu 3 ár og ný stjórn sambandsins er kosin.
Á meðan þingfulltrúar sinna þessum störfum fyrir stéttarfélagið og félagsmenn þess öllum til hagsbóta, eru aðrir sem taka boltann á vinnustað og leggja sitt af mörkum við að fylla skörðin 65 og það ber að þakka! Munum að öflugt félagsstarf er lykillinn að sterku stéttarfélagi!!
Á skrifstofunni starfa einungis 3 starfsmenn, í 2.8 stöðugildum svo það er augljóst að meðan á þingi stendur þarf að loka skrifstofunni. Því miður og getum ekki heldur svarað síma, því starfsmenn vinna að undirbúningi bæði fyrir þing og á þingi. Við lokum 16-18. mars, en eftir sem áður er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected] og við munum reyna að svara póstum af fremsta megni.