GLEÐILEGA PÁSKA
Kæru félagsmenn, Senn líður að páskum, fimm daga frí framundan og því kjörið að njóta útivistar og samveru með fjölskyldum og vinum. Starfsfólk og stjórn SSF óskar ykkur innilega gleðilegra páska.
Kæru félagsmenn, Senn líður að páskum, fimm daga frí framundan og því kjörið að njóta útivistar og samveru með fjölskyldum og vinum. Starfsfólk og stjórn SSF óskar ykkur innilega gleðilegra páska.
Launahækkun frá 1. apríl 2022 Í kjarasamningum SSF og SA (SFF) eru ákvæði um „hagvaxtarauka“. Til þess að virkja hagvaxtaraukann 2022 þurfti hagvöxtur á mann að verða meiri en 1% árið 2021. Fyrir árið 2021 hækkaði hagvöxtur á mann um 2,53% skv. útreikningum Hagstofu Íslands. Þar með er félagsmönnum SSF tryggð hækkun mánaðarlauna. Þeir sem eru með lægri laun en 595.000 á mánuði hækka um 10.500 krónur/mánuði. Þeir sem eru með laun…
Eins og félagsmönnum er kunnugt þá lauk þingi SSF fyrir helgi. Á þinginu er stefna SSF mörkuð til næstu þriggja ára í senn með ályktunum þings og fara þær hér á eftir. Ný stjórn var kjörin og óskum við henni til hamingju með kjörið (sjá frétt frá 19. mars þar um). Nýr formaður SSF er Ari Skúlason og tekur hann við keflinu af fráfarandi formanni til 27 ára, Friðberti Traustasyni…
Þingi SSF lauk í gær á tilsettum tíma þrátt fyrir tafir vegna veðurs eins og glöggir félagsmenn hafa kannski séð á heimasíðunni á fimmtudaginn. Venju samkvæmt var m.a. kosið í stjórn SSF til þriggja ára. Friðbert Traustason formaður félagsins síðastliðin 27 ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Risu þingfulltrúar úr sætum og klöppuðu Friðberti lof í lófa fyrir hans frábæru störf í þágu SSF. Myndin fyrir neðan…
Það er ekki laust við að einhverjir hafi upplifað stemminguna frá unglingsárum þegar farið var í skíðaferðalögin með rútu og svo heim í hríðarbyl!! Í morgun þegar þingfulltrúar voru að hafa sig í að fara af stað, voru okkur allir vegir ófærir í orðsins fyllstu merkingu! Um kl. 10 opnaðist svo veðurgluggi og ákveðið að fara "krýsuvíkurleiðina" með Suðurstrandarveginum til Selfoss. Það hafðist þó seint megi segja að bílsjórinn ætti…
.Kæru þingfulltrúar, Mæting 9.15 á Norðlingaholt. Við förum frá Norðlingaholti 9.30. Erum í beinni við vegagerðina og tökum ákvarðanir út frá því.
HELLISHEIÐIN OG REYKJANESBRAUTIN ERU ÓFÆRAR SEM STENDUR. VEGAGERÐIN SEGIR GLUGGA UM 10. TÖKUM STÖÐUNA UM 9.00. VERIÐ VIÐBÚIN AÐ BREGÐAST HRATT VIÐ. FYLGIST MEÐ HÉR!
Næstkomandi fimmtudag og föstudag 17.-18. mars 2022 verður þing SSF haldið. Þingið er haldið á þriggja ára fresti þar sem 65 fulltrúar frá öllum aðildarfélögum SSF koma saman og leggja línurnar fyrir næstu 3 ár og ný stjórn sambandsins er kosin. Á meðan þingfulltrúar sinna þessum störfum fyrir stéttarfélagið og félagsmenn þess öllum til hagsbóta, eru aðrir sem taka boltann á vinnustað og leggja sitt af mörkum við að fylla…
Ef ykkur langar að hlusta á streymi af hádegisfundinum í dag, þá er hér linkur á fundinn: https://livestream.com/accounts/5108236/events/10225207
Daginn, daginn, Næstkomandi þriðjudag 8 mars kl. 12.00 á Hilton Reykjavík, Nordica (2 hæð, salur H), stendur Kvenréttindafélag Íslands fyrir viðburði undir nafninu "Er vinnumarkaðurinn vaknaður? #MeToo og lægri þröskuldur". Þetta er hádegisfundur haldinn af nokkrum stéttarfélögum þar á meðal SSF ásamt Kvenréttindafélagi Íslands í tilefni baráttudags kvenna þann 8. mars. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi í 1 klst og 15 mínútur svo það er um að gera…