SSF blaðið komið út
1. tölublað SSF blaðsins árið 2014 er komið út, blaðið má nálgast hér á síðunni undir ,,Bókasafn". Hér er einnig linkur beint á blaðið: SSF blaðið
1. tölublað SSF blaðsins árið 2014 er komið út, blaðið má nálgast hér á síðunni undir ,,Bókasafn". Hér er einnig linkur beint á blaðið: SSF blaðið
Kjarasamningar sem undirritaðir voru þann 11. mars 2014 milli SSF og SA voru samþykktir í allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SSF. Sjá niðurstöðu hér. Efni samningsins má lesa hér. Stjórn SSF
Í dag, þriðjudaginn 11. mars 2014, undirrituðu formenn samninganefnda SSF og SA nýjan kjarasamning sem gildir frá 1. febrúar 2014 til og með 28. febrúar 2015. Samningurinn byggir á sáttatillögu Ríkissáttasemjara sem lögð var fyrir stéttarfélög á almennum vinnumarkaði og undirritaðir 21. febrúar 2014. Kosið verður um kjarasamninginn í allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SSF dagana 17. - 19. mars 2014. Efni samningsins má lesa hér.
Nú er búið að draga úr réttum innsendum lausnum á hátíðarkrossgátunni sem var í síðasta SSF blaði. Vinningshafar eru eftirfarandi og fengu þeir send gjafabréf: Auður Ösp Jónsdóttir Björn Tryggvason Elínborg Þorsteinsdóttir María Guðnadóttir Vala Guðbjartsdóttir Óskum við þeim til hamingju með vinningana og þökkum jafnframt öllum þeim sem tóku þátt. Starfsfólk SSF
Á undanförnum vikum hafa farið fram óformleg samtöl fulltrúa SSF og SA um kjarasamninga fyrir félagsmenn SSF, sem gilda eiga út árið 2014. Því miður hafa þessi samtöl engu skilað öðru en því að SA býður SSF kjarasamning sem nær eingöngu felst í 2,8% launahækkun. Kostnaðarauki fjármálafyrirtækjanna af slíkum samningi væri innan 3,0% marka, en kostnaður kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er tæplega 4,0% (sjá viðtöl við Þorstein Víglundsson framkvæmdastjóra SA…
Dagana 12-13. febrúar 2014 fara fram trúnaðarmannakosningar SSF. Nánari upplýsingar hér á síðunni undir Trúnaðarmenn/Kosning trúnaðarmanna.
Eins og félagsmenn vita þá er SSF ekki aðili að ASÍ. Kjarasamningur ASÍ/SA gildir því ekki fyrir félagsmenn SSF. Eins og er eru kjaraviðræður í biðstöðu en ljóst að SA hefur lagt línur hvað kostnaðarauka fyrirtækja varðar fyrir árið 2014 (2,8% launahækkun + 0,35% vegna láglauna).
Hér er linkur á nýjasta SSF blaðið, SÆKJA. Hér á síðunni undir Bókasafn má nálgast eldri eintök.
Skrifstofa SSF verður lokuð 23. desember - 2. janúar. Tölvupósti sem berst á ssf(hjá)ssf.is verður svarað eins fljótt og mögulegt er. Ef erindið er brýnt þá vinsamlegast sendið póst á hilmar(hjá)ssf.is eða á fridbert(hjá)ssf.is
Síðasta afgreiðsla Styrktarsjóðs SSF á þessu ári verður í vikunni. Umsóknir sem berast fyrir fimmtudag verða afgreiddar fyrir jól. Stefnt er að næstu afgreiðslu í annarri viku janúar, eigi síðar en 10. janúar. Ekki er nauðsynlegt að senda inn umsókn fyrir áramót vegna reikninga 2013. Hafa þarf í huga að reikningar séu ekki eldri en tólf mánaða.