Fundað áfram í kjaradeilu SSF og SA
Annar fundur í kjaradeilu SSF og SA fór fram sl. föstudag í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Ákveðið var að funda áfram á mánudaginn, 31. ágúst.
Friðbert Traustason, formaður SSF, segir að fundurinn hafi ekki verið gagnslaus en að langt sé í land við að leysa þann hnút sem deilan er í. Hann vonast til þess að fundir vikunnar verði árangursríkari en fram til þessa.