KEILUMÓT 18DA OG 21STA OKTÓBER!
SSF mótið í keilu 2021
Eftir smá hlé þá höldum við SSF mót í keilu, mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.
Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.
Mótið verður haldið í Egilshöllinni dagana 18. og 21. október kl. 18:00.
Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt veitingum.
Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang [email protected] fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. október.
Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan ( helst í röð leikmanna á braut )
NET-fang : [email protected]
NET-bréf subject : “SSF_keila_2021 – heiti liðs”.
Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin.