Tryggingaupphæð
Í 7. kafla kjarasamninga SSF kemur fram að félagsmenn SSF eru slysatryggðir fyrir dauða eða vegna varanlegrar örorku sbr grein 7.1, og einnig njóta félagsmenn hóplíftryggingar sbr. grein 7.4.
Bótaupphæðir þessara trygginga breytast tvisvar á ári í samræmi við vísitöluhækkanir.
Sérstaklega er áréttað að líkamstjón sem leiðir til örorkumats verður að tilkynna til viðkomandi tryggingafélags innan árs frá tjóndegi. Ef það er ekki gert fellur bótaskylda tryggingafélags niður.
Tölur sem eru í gildi eru eftirfarandi (sjá nánar í texta í áðurnefndum greinum kjarasamnings):
Tryggingafjárhæðir samkvæmt kjarasamningum SSF, uppfærðar fjárhæðir miðað við apríl 2024.
Vísitala neysluverðs í mars 2024 er 620,3 stig
Einhleypur barnlaus 2.217.415
Einhleypur barn/börn 7.117.374
Hinn látni í hjúskap/sambúð 9.796.771
Lætur eftir sig börn innan 18 ára 3.259.514 (hvert barn)
Varanleg hámarksörorka 65.589.388