skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Kosning trúnaðarmanna – framboð í stjórn SSF

Kosning trúnaðarmanna – framboð í stjórn SSF

Verður þú næsti trúnaðarmaður, nú eða stjórnarmaður SSF?

Tvennt sem við viljum minna á í dag, en það eru trúnaðarmannaskosningar 9-10 febrúar og framboð til stjórnar SSF, en umsóknarfrestur er til 16 febrúar næstkomandi.

Trúnaðarmaður á hverjum stað skipuleggur kosningu og tekur á móti framboðum.  Skipulag og utanumhald um framboð til stjórnar er í höndum kjörstjórnar SSF.  Nánari upplýsingar um hvort tveggja er að finna hér örlítið neðar á heimasíðunni.

Það er því um að gera að leggjast undir feld um helgina og íhuga hvort þið hafið áhuga á að ganga í raðir trúnaðarmanna eða gefa kost á ykkur til stjórnarsetu í kosningu á næsta þingi SSF.

 

 

 

 

Search