LAUNAKÖNNUN SSF 2018
SSF hefur ákveðið að gera launakönnun meðal félagsmanna og fer hún fram dagana 8-20. október. Launakönnunin er sambærileg fyrri könnunum en að auki verður spurt um upplifun félagsmanna af ýmsum neikvæðum atburðum tengdum einelti og áreitni. Einnig er spurt um hvað félagsmenn vilji leggja áherslu á í komandi kjaraviðræðum.
Umslögum með vefslóð á könnunina og lykilorði verður dreift á starfsstöðvum félagsmanna SSF dagana 8.-9. október (mánudag og þriðjudag).
Gríðarlega mikilvægt er að félagsmenn svari könnuninni. Launakönnun SSF er eina tækið fyrir félagsmenn til að staðsetja sig í launum miðað við starfsvettvang, menntun og reynslu.
Þeir sem svara könnuninni fara í happdrættispott þar sem veglegir vinningar eru í boði (nánar í bréfi sem hver og einn fær afhent).