Nýr kjarasamningur SSF!
Samninganefnd SSF undirritaði nýjan kjarasaamning í gær. Samningurinn er afturvirkur og gildir frá 1. Febrúar 2024 og er til fjögurra ára.
Samningurinn er í anda þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á almenna markaðnum á þessu ári, og almennar launahækkanir þær sömu. Ekki er um að ræða sömu krónutölu fyrir alla eins og verið hefur í tveimur síðustu samningum og ekkert þak er á launahækkunum.
Fyrir utan það sem að finna í öðrum samningum eru nokkrar breytingar á orlofsrétti í þessum nýja samningi SSF, framlag atvinnurekenda í Menntunarsjóð SSF mun hækka og þar að auki er um að ræða umbætur á líftryggingarhluta kjarasamningsins.
SSF mun halda þrjár kynningar á samningnum á Teams á morgun, miðvikudag. Sú fyrsta er kl. 9.00 og svo verða einnig kynningar kl. 13.00 og 15.00. Við gerum svo ráð fyrir að rafræn atkvæðagreiðsla hefjist á föstudaginn og standi í eina viku. Í því sambandi er mikilvægt að félagsmenn skoði hvort upplýsingar um símanúmer og netföng séu í lagi á mínum síðum á heimasíðu SSF.
Hlekkir inn á kynningarnar á Teams eru eftirfarandi:
Kynning kl. 9
Meeting ID: 369 534 418 524
Passcode: w6Disk
Kynning kl. 13
Meeting ID: 355 689 482 704
Passcode: KK3pwE
Kynning kl. 15
Meeting ID: 379 037 954 475
Passcode: gb4Nd6