Nýr styrktarliður
Nú er hægt að sækja um styrk úr Menntunarsjóði vegna tómstundanáms eða tómstundanámskeiðs. Veittur er styrkur fyrir allt að helmingi námskeiðsgjalda að hámarki kr. 20.000,- á hverju almanaksári, gildir frá 1. janúar 2018.
Nálgast má allar upplýsingar um menntunarsjóð SSF á heimasíðu félagsins þ.m.t. úthlutunarreglur. Hægt er að sækja um styrk á Mínum síðum SSF og fylgjast með stöðu umsókna.
Tómstundanám eða tómstundanámskeið. Veittur er styrkur fyrir allt að helmingi námskeiðsgjalda að hámarki kr. 20.000,- á hverju almanaksári (gildir frá 1. janúar 2018). Undir tómstundanám og tómstundanámskeið fellur nám og námskeið sem hefur skilgreint upphaf, endi og leiðbeinanda. Athugið að aðgangskort í líkamræktarstöðvar og ástundum íþrótta falla ekki undir þennan styrktarflokk þar sem aðildarfyrirtæki að kjarasamningi SSF greiða íþróttastyrki. Umsókn þarf að fylgja löglegur reikningur sem á uppruna sinn í viðurkenndu bókhaldskerfi eða að öðrum kosti þarf reikningur að vera stimplaður. Á reikningi þurfa að koma fram upplýsingar um hvaða nám eða námskeið verið er að sækja og hver móttekur greiðslu.