Nýtt skipulag hjá RB
Nýtt skipulag innleitt til að fylgja eftir stefnubreytingu
Nýtt skipulag mun taka gildi 1. október næstkomandi hjá RB og er það í kjölfar endurskoðaðrar stefnu félagsins, segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB.
„Helstu markmiðin með nýju skipulagi er að setja aukna áherslu á þarfir viðskiptavina sem og að efla þróun og nýsköpun. Ábyrgð á tekjum og afkomu verður dreifðari og áhersla á aukna hagkvæmni og öryggi reksturs tryggt með öflugum stoðsviðum. Einnig er í nýju skipulagið horft til þess að RB er þessa dagana að innleiða ný kjarnakerfi fyrir innlánastarfssemi og greiðslur, en kerfin verða megin burðarlag viðskiptabankastarfssemi á Íslandi. Nýtt skipulag er liður í undirbúning félagsins á því á að kerfin verði tekin í notkun í byrjun næsta árs.“
Nýtt skipulag samanstendur af þremur lausnasviðum Sérlausnum, Kjarnalausnum og Rekstrarlausnum, sem bera ábyrgð á tekjum og afkomu félagsins, og þremur stoðsviðum Tæknistjórn, Fjármála- og verkefnastjórn og Mannauðs- og markaðsstjórn.
Um leið og breytt skipuriti tekur gildi verða breytingar á framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Guðjón Steingrímsson framkvæmdastjóri Hugbúnaðarsviðs lætur af störfum og fer á eftirlaun. Tveir nýir framkvæmdastjórar taka til starfa en það eru þeir Aðalgeir Þorgrímsson sem áður sinnti starfi forstöðumanns Vörustýringar en verður nú framkvæmdastjóri Sérlausna og Jón Helgi Einarsson sem áður var forstöðumaður Verkefnastýringar verður nú framkvæmdastjóri Kjarnalausna.
Auk þeirra tveggja er framkvæmdastjórn RB skipuð Friðriki Þór Snorrasyni forstjóra, Ingibjörgu Arnarsdóttur framkvæmdastjóra Fjármála- og verkefnastjórnar, Herdísi Pálu Pálsdóttur framkvæmdastjóra Mannauðs- og markaðsstjórnar, Þorsteini Björnssyni framkvæmdastjóra Tæknistjórnar og Magnúsi Böðvari Eyþórssyni framkvæmdastjóra Rekstrarlausna.
Fréttatilkynning frá RB