SSF MÓT Í KEILU 2.-3. MAÍ – TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU FYRIR 28. APRÍL
Mótið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.
Tvær breytingar verða á mótinu í ár, aðeins verða leyfðir tveir deildarspilarar í hverju liði og keppt verður í 3ggja manna liðum í karla- og kvennaflokki ekki 4ra manna liðum eins og áður. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.
Mótið verður haldið í Egilshöllinni dagana 2. og 3. maí kl. 19:00.
Leikið verður tvö kvöld. Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt verðlaunaafhendingu og veitingum.
Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang [email protected] fyrir kl. 12:00 föstudaginn 28. apríl.
Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan (helst í röð leikmanna á braut )
Netfang : [email protected]
NET-bréf subject : “SSF_keila_2023 – heiti liðs”.
Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin