SSF samþykkir persónuverndarstefnu
Á síðasta stjórnarfundi SSF samþykkti stjórnin persónuverndarstefnu fyrir samtökin. Traust er eitt af einkunnarorðum SSF og leggur félagið mikla áherslu á að tryggja öryggi þeirra persónuupplýsinga sem félagsmenn SSF treysta félaginu fyrir. Félagið fylgist náið með þeim breyttu áherslum sem eru framundan í tengslum við nýja samevrópska persónuverndarlöggjöf sem tekur gildi í vor.
Hægt er að kynna sér stefnu samtakanna hér.