ÞING SSF 2022 – ALLIR KOMUST HEILIR Á SELFOSS!
Það er ekki laust við að einhverjir hafi upplifað stemminguna frá unglingsárum þegar farið var í skíðaferðalögin með rútu og svo heim í hríðarbyl!! Í morgun þegar þingfulltrúar voru að hafa sig í að fara af stað, voru okkur allir vegir ófærir í orðsins fyllstu merkingu! Um kl. 10 opnaðist svo veðurgluggi og ákveðið að fara “krýsuvíkurleiðina” með Suðurstrandarveginum til Selfoss. Það hafðist þó seint megi segja að bílsjórinn ætti á hættu að fá hraðasekt, og upp úr 12.30 voru ferðalangarnir komnir í hús, heilir á húfi!
Þrátt fyrir tilhliðranir í dagskrá gekk dagurinn ljómandi vel, þótt við hefðum stolist aðeins inn í frítímann.
2 erlendir gestir heimsækja okkur á þingið, þær Carin Hallerström, framkvæmdastjóri NFU og Christina Colclough, stofnandi The Why Not Lab. Þær tóku rútuna með þingfulltrúum og upplifðu rútstemminguna og hafa vonandi haft pínu gaman að þessu “ævintýri”.