ÞINGI SSF HALDIÐ Á HÓTEL SELFOSSI 16.-18. MARS LAUK Í GÆR
Þingi SSF lauk í gær á tilsettum tíma þrátt fyrir tafir vegna veðurs eins og glöggir félagsmenn hafa kannski séð á heimasíðunni á fimmtudaginn. Venju samkvæmt var m.a. kosið í stjórn SSF til þriggja ára.
Friðbert Traustason formaður félagsins síðastliðin 27 ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Risu þingfulltrúar úr sætum og klöppuðu Friðberti lof í lófa fyrir hans frábæru störf í þágu SSF. Myndin fyrir neðan er af nýrri stjórn en á hana vantar Jóhönnu M. Jónsdóttur.
Ný stjórn SSF:
Ari Skúlason, formaður
Oddur Sigurðsson, 1. varaformaður
Guðný S. Magnúsdóttir, 2. varaformaður
Bára Björk Ingibergsdóttir, meðstjórnandi
Hörður Jens Guðmundsson, meðstjórnandi
Jóhann Arnarson, meðstjórnandi
Jóhanna M. Jónsdóttir, meðstjórnandi
Karlotta Ósk Óskarsdóttir, meðstjórnandi
Kristín Ósk Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi
Skipan í embætti gjaldkera og ritara fara fram á fyrsta fundi nýrrar stjórnar.
Fleiri fréttir af þinginu verða settar hér inn í næstu viku, m.a. frá niðurstöðum nefnda sem skiluðu ályktunum sem ný stjórn SSF vinnur eftir næstu þrjú ár.
Við þökkum þingforsetum, þingriturum og þingfulltrúum fyrir frábær störf þrátt fyrir erfiðan aðdraganda vegna veðurs!