Uppfærður kjarasamningur SSF og SA
Búið er að setja inn uppfærðan heildarkjarasamning Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins á vefinn. Samningurinn gildir frá 1. október 2015 – 31. desember 2018.
Með uppfærslunni hefur kjarasamningurinn frá 8. september 2015 verið felldur inn í eldri kjarasamning.
Skoða má samninginn hér og einnig með því að fara inn á undirsíðuna “Kjaramál” á heimasíðu SSF og fara þar inn á “Kjarasamningar”.