Verkefnamiðuð vinnuaðstaða
Í nýjum höfuðstöðvum Íslandsbanka í Norðurturninum við Smáralind verður nánast enginn starfsmaður með fast sæti heldur á fólk að velja sér sæti sem hentar verkefninu sem það er að vinna á hverjum tíma. „Einn daginn getur þú sest við hefðbundna vinnustöð, næsta dag sest inn í þagnarrými í ætt við lessal í bókasafni til að hámarka einbeitingu og þriðja daginn komið þér fyrir í hópvinnurými til að tryggja öfluga samvinnu í verkefnavinnu,“ segir í tilkynningu til starfsmanna.
„Þannig stýrir starfsfólk sinni vinnuaðstöðu í nýjum höfuðstöðvum Íslandsbanka til samræmis við þau verkefni sem þau þurfa að sinna á hverjum tíma.“
Hefðbundið vinnuumhverfi á útleið
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur fram að nýtt vinnuumhverfi höfuðstöðva Íslandsbanka nefnist verkefnamiðuð vinnuaðstaða og á fyrirkomulagið að styrkja samstarf milli deilda og sviða. Í tilkynningunni til starfsmanna segir að opið vinnuumhverfi eins og almennt þekkist hér á landi sé á útleið enda sé þá starfsmaðurinn fastur á einum stað. Hann geti þar af leiðandi ekki stjórnað áreiti eins og hávaða þegar hann þurfi að einbeita sér.
Höfuðstöðvar Íslandsbanka, sem eru í dag á Kirkjusandi, verða fluttar yfir í Norðurturninn í haust. Höfuðstöðvarnar verða um 8.600 fermetrar og þar munu 650 starfsmenn starfa.